Gleðileg jól

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Við hjá Tertugallerí viljum senda ykkur okkar bestu óskir um gleðileg jól.

Megið þið njóta jólahátíðarinnar í faðmi fjölskyldu og vina með hlýju, gleði og ljúffengum kökum og tertum.

Tertugalleríið gerir allt einfalt og fljótlegt að panta veitingar fyrir hvaða tilefni sem er. Gefðu ímyndunaraflinu lausan tauminn því möguleikarnir eru nánast endalausir. Hafðu í huga að afgreiðslu- og pantanatími Tertugallerísins breytist yfir jólin.

Ferskbakað til að njóta samdægurs

Við hjá Tertugalleríinu viljum ítreka að best er að sækja pöntun sama dag og veislan eða tilefnið er, þannig að þú bjóðir upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga þegar tertur eru pantaðar!

Afhending og ábyrgð

Það er okkur hjá Tertugalleríinu mikið kappsmál að afgreiðsla pantana sé alltaf rétt og að vörurnar okkar standist væntingar þínar. Liður í að tryggja það er að viðtakendum er alltaf sýnd varan við afgreiðslu og farið er fram á að móttakandi staðfesti að um rétta afgreiðslu sé að ræða hvort sem það er sami aðili og pantaði eður ei.

Á opnunar- og afgreiðslutíma er alltaf bakari á vakt sem brugðist getur við og lagfært eða breytt ef misskilningur hefur orðið eða afgreiðsla er ekki í samræmi við það sem pantað var. Eftir að vörur hafa verið sýndar og móttakandi veitt þeim viðtöku eru pantanir ekki lengur á ábyrgð Tertugallerís.

Ef einhverja hluta vegna pöntun er ekki sótt fyrir lokun er reikningur sendur á viðkomandi þar sem varan hefur verið framleidd samkvæmt ósk kaupanda.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →