Bókartertur

Bókarterturnar frá Tertugalleríinu eru afar vinsælar og viðeigandi í útskriftarveislur og fermingar. Á þær geturðu látið setja bæði mynd og texta að eigin vali. Bókarterturnar fást í þremur bragðtegundum: súkkulaði, jarðarberja og Irish coffee. Terturnar eru síðan hjúpaðar dýrindis marsípani sem skreytt er að fallegan og viðeigandi hátt eftir gerð og tilfefni.
Athugið að neyta ætti vara frá Tertugalleríi samdægurs.
Ekki er hægt að ábyrgjast gæði og öryggi vöru umfram ráðlagt geymsluþol.
Ekki hentar að sækja vörur fyrr en á veisludaginn þar sem gæði tapast, krem og botnar þorna og marsipan getur runnið til.
Ávallt þarf að geyma kælivörur í kæli við 0-4°C.