Fáðu þér himneskar súkkulaðitertur!

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Það mótmælir engin því að fá súkkulaðitertu. Himneskar og svo góðar að ómögulegt er að standast þær. Við hjá Tertugallerí erum afar ánægð að geta boðið upp á fjölbreytt úrval af súkkulaðitertum. Súkkulaðitertur eru sígildar tertur sem henta öllum tilefnum og eftirlæti margra sælkera. Þær eru bragðgóðar og gómsætar og koma í ýmsum stærðum.

Settu eigin mynd á súkkulaðitertuna fyrir þitt tilefni eða hafðu það einfalt og pantaðu súkkulaðitertu með íslenska fánanum. 

Skreytingarnar eru fjölbreyttar og við hæfi þeirra tertugerðar sem pöntuð er. Það er einnig hægt að prenta myndir á marsípan sem sett er á terturnar og líka er hægt að setja þinn eigin texta og þar með færðu persónulega og gómsæta súkkulaðitertu.

Allar tertur frá Tertugalleríinu eru afgreiddar nýbakaðar. Afgreiðslufrestur undir venjulegum kringumstæðum er 2-3 sólarhringar. Sjá hér að neðan afhendingartíma um jól og áramót 2020. Hafa ber í huga að afgreiðslufresturinn getur lengst með skömmum fyrirvara og lokast fyrir þá daga í pöntunardagatalinu. Þegar gengið er frá pöntun þarf að velja á hvaða klst. er sótt til okkar í Tertugalleríið í Skeifuna 19.

AFHENDING UM JÓL OG ÁRAMÓT 2020


*Til að fá afhenta vöru mánudaginn 28.desember þarf að leggja inn pöntun í síðasta lagi kl.12 miðvikudaginn 23. desember.

**Til að fá afhenta vöru mánudaginn 4. janúar þarf að leggja inn pöntun í síðasta lagi kl 12 miðvikudaginn 30. desember.

Almennt: Til að fá vöru afhenta á laugardegi eða sunnudegi þarf að panta í síðasta lagi fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi, með fyrirvara um að ekki sé búið að loka fyrir pantanir.

AÐRIR AFGREIÐSLUTÍMAR TERTUGALLERÍS ERU EFTIRFARANDI:
VIRKIR DAGAR KL. 8-14
LAUGARDAGAR KL. 9-12
SUNNUDAGAR KL. 9-12


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →