Fréttir

Tertugallerí og viðskiptavinir söfnuðu fyrir Bleiku slaufuna

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

­Október var bleikur mánuður hjá Tertugalleríinu eins og víða, en það gleður okkur að tilkynna að alls söfnuðust 671.590 krónur sem renna beint til Bleiku slaufunnar, sem er árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands gegn krabbameinum hjá konum. Fyrirkomulag söfnunarinnar var á þann veg að á ákveðnu tímabili í október bauð Tertugalleríið viðskiptavinum sínum að panta bleikar tertur, bleikar bollakökur og bleikar Mini möndlukökur og runnu 15 prósent af söluhagnaðinum til Bleiku slaufunnar. Við hjá Tertugalleríinu erum gífurlega ánægð með söfnunina og fyrir viðtökurnar frá viðskiptavinum okkar, en málefnið er ávallt mikilvægt. Fjárhagslegur stuðningur skipulagsheilda og einstaklinga við árlegt árvekni-...

Lestu meira →

Þú færð afmælistertuna hjá okkur!

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Við hjá Tertugalleríinu vitum að það er að mörgu að huga þegar kemur að skipulagningu í aðdraganda afmælis. Hvort sem fagna á stórafmæli í stórum hópi eða halda litla veislu þá er terta frá Tertugalleríinu tilvalin á veisluborðið. Við erum alltaf tilbúin að liðsinna þér í afmælisundirbúningnum. Hjá Tertugalleríinu er auðvelt að panta og enn auðveldara að bjóða upp á.  Súkkulaðiterta, bollakökur og kleinuhringir fyrir afmælið Góð súkkulaðiterta með nammi er vinsæl og kætir ávallt bragðlaukana. Súkkulaðiterturnar frá Tertugalleríinu eru sígildar, henta flestum tilefnum og eru af ýmsum stærðum og gerðum. Hægt er að fá þær fyrir 15 manns (20x30cm),...

Lestu meira →

Bjóddu upp á ljúffenga gulrótarköku

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Gulrótarkaka er klassísk og ljúffeng kaka sem sameinar sætt bragð og heilnæm hráefni. Hún er ekki aðeins vinsæl fyrir sitt ljúffenga og rjómakennda bragð heldur einnig fyrir þá einstöku áferð sem gulræturnar gefa. Þessi kaka hefur lengi verið eftirlæti margra, bæði á veislum og sem daglegur eftirréttur. Það sem gerir gulrótarköku einstaka er hvernig gulræturnar bæta við raka og mýkt án þess að yfirgnæfa bragðið. Gulrætur eru náttúrulega sætar og gefa kökunni frábært jafnvægi milli sætleika og heilbrigðis. Þær eru einnig ríkar af A vítamíni, öðrum næringarefnum og trefjum, sem gerir kökuna að aðeins hollari kost en margar aðrar kökur....

Lestu meira →

Frídagur verslunarmanna

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Frídagur verslunarmanna er haldinn fyrsta mánudag í ágúst ár hvert og ber því ekki alltaf upp á sama degi mánaðarins. Upphaflega var frídegi verslunarmanna komið á af Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur og var ætlaður starfsfólki verslana að danskri fyrirmynd. Fyrst var haldið upp á frídag verslunarmanna í Reykjavík fimmtudaginn 13. september árið 1894. Var það eftir að kaupmenn allra stærri verslana í Reykjavík buðust til að gefa starfsmönnum sínum sérstakan frídag til að skemmta sér. Sá Verzlunarmannafélag Reykjavíkur um skemmtidagskrá þann dag sem það og gerði lengst framan af. Ári seinna var haldið upp á daginn um miðjan ágúst og þriðja árið...

Lestu meira →

Pantaðu tímanlega fyrir verslunarmannahelgina

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Verslunarmannahelgin er stærsta ferðahelgi ársins og í ár er hún dagana 1.-4. ágúst. Verslunarmannahelgin er tilkomin út frá frídegi verslunarmanna og var sá dagur fyrst haldinn fyrir rúmum 122 árum, nánar tiltekið 13. september árið 1894. Það var Verzlunarmannafélag Reykjavíkur (VR) sem átti frumkvæði að því að veita starfsfólki í verslunum frí þennan dag. VR samþykkti að skipuleggja daginn svo hann yrði nýttur eins og til hans var stofnað. Í kringum verslunarmannahelgina eru ferðalög algeng þar sem vinir og vandamenn sameinast og búa til minningar í gegnum gleðistundir. Þá er mikilvægt að gleyma ekki að gera vel við sig og...

Lestu meira →