Gefðu þér tíma

Útgefið af Helga Guðrún Jónasdóttir þann

Annatímar fara senn í hönd hjá Tertugalleríi Myllunnar. Við erum afar stolt af handverki kökugerðarmeistara okkar, sem anna aðeins takmörkuðum fjölda pantana á degi hverjum. Það er því mikilvægt að panta tímanlega, svo að afgreiða megi pöntunina þína á þínum degi. Afgreiðslufrestur getur lengst ef pantað er með skömmum fyrirvara.

Þannig tryggjum við gæði í fremsta flokki á öllum stigum köku- og tertugerðar Myllunnar. Og þú nýtur undirbúningsins fyrir fermingarveisluna mun betur.

Þá er ekki minna mikilvægt að muna að pantanir sem eru sóttar um helgar þarf að ganga frá á söluvef Tertugalleríisins fyrir kl. 14:00 á föstudögum. Og um helgar er opið hjá okkur kl. 09:00 - 12:00. Það er því vissara að vera með allar tímasetningar á hreinu. 

Gefðu þér tíma í undirbúninginn. Pantaðu tímanlega. Kynntu þér pöntunar- og afgreiðslutíma Tertugallerís Myllunnar.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →