Hver er jólaleynivinur þinn?

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Í aðdraganda jólanna eru leynivinaleikir vinsælir á vinnustöðum landsins, enda er leikurinn frábær aðferð til að brjóta aðeins upp vinnudaginn í aðdraganda jóla.

Mjög mikilvægt að halda leyndinni til að gera jólaleikinn enn skemmtilegri. Þegar nær dregur jólum og jólafríið er skammt undan kemur svo í ljós hver gladdi hvern þegar giskað hefur verið á hverjir leynivinirnir voru.

Leynigjafir

Fallegar makkarónukökur fyrir leynivininn í jólaleiknum

Makkarónukökur í leynigjöf

Það er alltaf gaman að hugsa út fyrir boxið og koma skemmtilega á óvart með öðruvísi hætti en venja er. Makkarónukökur eru fullkomin leynivinagjöf. Þær eru litríkar og  fallegar í laginu og bráðna í munni og munu án efa gleðja þinn leynivin. Hjá Tertugalleríinu getur þú pantað ljúffengar og fallegar  makkarónukökur. Þær koma 35 stykki saman á bakka og eru með sex bragðtegundum: sítrónu-, saltkaramellu-, hindberja-, vanillu-, súkkulaði-, pistasíu-, kaffi- og ástaraldinbragði.

Hjá Tertugalleríinu færðu líka frábær smástykki sem eru ljúf og sæt hamingja í einum bita. Þess heldur eru smástykkin tilvalin sem leynigjöf sem kemur skemmtilega á óvart. Kíktu við á vefsíðu okkar og skoðaðu skemmtilegt úrval veisluveiga.

Pantaðu tímanlega

Ef þig langar að grípa tækifærið fyrir leynivininn, er um að gera að ganga frá pöntuninni sem fyrst. Við minnum jafnframt á að miða pantanir við þann dag sem tilefnið er eða því sem næst, vegna þess að allt sem við afgreiðum frá okkur er bakað samdægurs. Þannig tryggjum við að þú fáir kökurnar sem þú pantaðir nýbakaðar. 

Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi.

Vinsanlegst athugaðu að á álagstímum getur afgreiðslutími lengst.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →