Af hverju er nafnleynd fram að skírn eða nafnaveislu?

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Það er merkur áfangi í lífi hvers barns að skírast eða vera gefið nafn og er oft talað um að skírnin eða nafngjöfin sé einn af fallegustu viðburðum í lífi nýbakaðra foreldra og fjölskyldna þeirra, enda er þá kunngjört hvað barn þeirra á að heita.

Athöfnin fer yfirleitt fram í kirkju, sal eða heimahúsi og hefur ýmis konar merkingu í samfélaginu. Fyrir mörgum er þetta mikilvæg stund og ákveðin tímamót þar sem lítið barn er í fyrsta skipti kynnt með nafni fyrir fólkinu sínu.

Margir foreldrar kjósa að halda nafni barnsins leyndu fram að skírn eða nafngjöf, og þótt þetta sé ekki algild hefð, er hún algeng á meðal íslenskra foreldra. En hvað liggur að baki þessari ákvörðun?

Hefðir

Í gegnum tíðina hefur það verið hefð í íslensku samfélagi að gefa barninu nafn við skírn eða nafngjöf. Í kristnum sið hefur skírnin verið mikilvægur þáttur í lífi nýfædds barns og nafnið hefur verið gefið sem hluti af þeirri athöfn. Í sumum tilvikum telja foreldrar að nafnið eigi að vera opinberað á hátíðlegum degi og vilja því ekki upplýsa það fyrr en í sjálfri athöfninni.

Spennan og eftirvæntingin

Fyrir marga foreldra skapar það aukna eftirvæntingu og spennu að halda nafni barnsins leyndu þar til það er formlega gefið. Að tilkynna nafnið í skírn eða nafngjöf verður þá sérstakt augnablik sem fjölskyldan og vinir geta tekið þátt í. Það verður einhvers konar gjöf til barnsins, þar sem nafnið fær þá stærri merkingu í augum þeirra sem standa því næst.

Margir foreldrar telja einnig að nafnið sé mikilvægur hluti af sjálfsmynd barnsins og vilji því gera augnablikið þegar það er kynnt sérstakt. Hvort sem það er gert með formlegri nafngjöf eða skírn, telja sumir að barnið eigi skilið að fá það augnablik þar sem nafnið er kynnt í fyrsta sinn með gleði og virðingu.

Ákvörðunin er ekki alltaf fullmótuð

Margir foreldrar eru ekki alveg vissir um nafnið strax eftir fæðingu barnsins. Þeir vilja gefa sér tíma til að finna nafn sem virkar rétt fyrir barnið og getur það stundum tekið nokkra daga eða vikur. Með því að halda nafnavalinu leyndu geta þeir leyft sér að prófa mismunandi nöfn, fylgst með hvernig barnið „passar“ við nafnið og tekið vel ígrundaða ákvörðun.

Skírnar- eða nafngjafaveisla

Skírnar- eða nafngjafaveisla er stór stund enda mun barnið bera nafnið um aldur og ævi. Foreldrar vilja yfirleitt bjóða upp á eftirminnilegt og fallegt veisluborð á svo stórum augnablikum í lífi sínu og barnsins.

Skírnar- og nafngjafartertur Tertugallerísins eru glæsilegar gæðatertur á góðu verði og eru einstaklega fallegar á veisluborðið á þessum merkisdegi.

Tertugalleríið býður upp á mikið úrval af veisluveigum fyrir ykkar skírnar- eða nafngjafaveislu. Við höfum tekið saman á einn stað úrval af veitingum sem henta vel, en í vefverslun okkar getur þú einnig fundið gott úrval af ljúffengum veisluveigum sem þú gætir viljað bjóða upp á í skírnar- eða nafngjafaveislunni hjá þínu barni.

Ferskbakað til að njóta samdægurs

Við hjá Tertugalleríinu viljum ítreka að best er að sækja pöntun sama dag og skírnar- eða nafnaveislan er, þannig að þið bjóðið upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga þegar tertur eru pantaðar!

Pantaðu tímanlega

Tertugallerí hefur í mörg ár boðið frábærar og ljúffengar veisluveigar fyrir skírnar- og nafnaveislur á hagstæðu verði. Við mælum eindregið með því að þið pantið tímalega.

Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi.

Afhending og ábyrgð

Það er okkur hjá Tertugalleríinu mikið kappsmál að afgreiðsla pantana sé alltaf rétt og að vörurnar okkar standist væntingar viðskiptavina. Liður í að tryggja það er að viðtakendum er alltaf sýnd varan við afgreiðslu og farið er fram á að móttakandi staðfesti að um rétta afgreiðslu sé að ræða hvort sem það er sami aðili og pantaði eður ei.

Á opnunar- og afgreiðslutíma er alltaf bakari á vakt sem brugðist getur við og lagfært eða breytt ef misskilningur hefur orðið eða afgreiðsla er ekki í samræmi við það sem pantað var. Eftir að vörur hafa verið sýndar og móttakandi veitt þeim viðtöku eru pantanir ekki lengur á ábyrgð Tertugallerís.

Ef einhverja hluta vegna pöntun er ekki sótt fyrir lokun er reikningur sendur á viðkomandi þar sem varan hefur verið framleidd samkvæmt ósk kaupanda.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla