Þú færð afmælistertuna hjá Tertugalleríinu
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Við hjá Tertugalleríinu vitum að það er að mörgu að huga þegar kemur að skipulagningu afmælis og hvort sem fagna á stórafmæli í stórum hópi eða halda litla veislu þá er súkkulaðiterta frá Tertugalleríinu alltaf tilvalin á veisluborðið.
Góð súkkulaðiterta með nammi er vinsæl í afmælisveislum og fær ávallt bragðlaukana til að kætast. Súkkulaðiterturnar frá Tertugalleríinu eru sígildar, henta flestum tilefnum og eru af ýmsum stærðum og gerðum. Hægt er að fá þær fyrir 15 manns (20x30cm), 30 manns (40,4x29cm) og 60 manns (58x39cm). Þá er jafnvel hægt að sérpanta enn stærri tertur.
Til að gera súkkulaðitertuna þína persónulegri er hægt að prenta mynd að eigin vali til að hafa á tertunni og það er líka hægt að setja texta á súkkulaðitertuna. Súkkulaðiterturnar okkar hafa bragðgóðan súkkulaðitertubotn með súkkulaði, skreytt með M&M, hlaupböngsum og brúnu ljúffengu smjörkremi á kantinum.
Það verður engin svikinn af bragðgóðu súkkulaðitertunum okkar.
Við erum alltaf tilbúin að liðsinna þér í afmælisundirbúningnum. Hjá Tertugalleríinu er auðvelt að panta og enn auðveldara að bjóða upp á. Við setjum súkkulaðitertuna á fallegan gylltan pappa sem auðveldar þér að bera fram og er einstaklega fallegt á veisluborði. Mundu bara að panta tímanlega!
Ferskbakað til að njóta samdægurs
Við hjá Tertugalleríinu viljum ítreka að best er að sækja pöntun sama dag og veislan eða tilefnið er, þannig að þið bjóðið upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga þegar tertur eru pantaðar!
Pantaðu tímanlega
Tertugallerí hefur í mörg ár boðið frábærar og ljúffengar súkkulaðitertur á hagstæðu verði. Við mælum eindregið með því að þú pantir tímalega.
Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi.
Afhending og ábyrgð
Það er okkur hjá Tertugalleríinu mikið kappsmál að afgreiðsla pantana sé alltaf rétt og að vörurnar okkar standist væntingar viðskiptavina. Liður í að tryggja það er að viðtakendum er alltaf sýnd varan við afgreiðslu og farið er fram á að móttakandi staðfesti að um rétta afgreiðslu sé að ræða hvort sem það er sami aðili og pantaði eður ei.
Á opnunar- og afgreiðslutíma er alltaf bakari á vakt sem brugðist getur við og lagfært eða breytt ef misskilningur hefur orðið eða afgreiðsla er ekki í samræmi við það sem pantað var. Eftir að vörur hafa verið sýndar og móttakandi veitt þeim viðtöku eru pantanir ekki lengur á ábyrgð Tertugallerís.
Ef einhverja hluta vegna pöntun er ekki sótt fyrir lokun er reikningur sendur á viðkomandi þar sem varan hefur verið framleidd samkvæmt ósk kaupanda.
Deila þessari færslu
- Merki: afmæli, afmælisterta, Afmælistertur, afmælisveisla, Pantaðu tímanlega, Súkkulaðiterta með mynd, Súkkulaðiterta með mynd nammi, Súkkulaðiterta með mynd nammi og texta