Tertugalleríið gerir þér einfalt fyrir að panta veisluveigar

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Tertugalleríið gerir þér einfalt fyrir að panta veitingar hratt og vel fyrir hvaða tilefni sem er. Það eina sem þú þarft að gera er að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn, því möguleikarnir eru nánast endalausir. Á vefsíðu Tertugallerísins finnur þú allar upplýsingar sem þú þarft fyrir pöntunarferlið og ef frekari spurningar vakna getur þú alltaf haft samband við okkur í tölvupósti, símleiðis eða á Facebook. Við reynum að svara öllum fyrirspurnum eins fljótt og hægt er, allt til að aðstoða þig á sem bestan máta.

Þegar góða veislu gjöra skal erum við hjá Tertugalleríinu ávallt tilbúin að liðsinna þér. Hjá okkur færðu ljúffengar tertur og kökur af ýmsu tagi sem henta flestum tilefnum og okkar vinsælu smástykki, sem eru ljúf og sæt hamingja í einum bita. Smástykkin okkar eru sérstaklega hentug með öðrum veisluveigum auk þess sem þau fegra veisluborðið þitt.

Brauðtertur, rúllutertubrauð, sælkerasalöt og snittur eru einnig að finna hjá okkur í Tertugalleríinu og hafa notið mikilla vinsælda í gegnum tíðina.

Fátt er vinsælla í veislum en brauðtertur og við bjóðum upp á þrjár mismunandi tegundir af brauðtertum með skinku-, túnfisk- og rækjum. Það er hægt að fá brauðterturnar 16-18 manna, eða 30-35 manna.

Sælkerasalötin frá Tertugalleríinu auðvelda þér fyrirhöfnina fyrir veisluna og eru fullkomin fyrir brauðtertuna, rúllutertubrauðið, á kexið og á samlokuna. Sælkerasalötin koma í handhægum 1 kg. umbúðum og er hægt að velja um skinku-, túnfisk- eða rækjusalat.

Rúllutertubrauðin okkar eru líka vinsæl og er sérstaklega hentugt að bjóða upp á þau samhliða brauðtertunum. Við bjóðum upp á tvær tegundir af rúllutertubrauðum, með skinku og aspas fyllingu og pepperoni fyllingu.

Við höfum einnig frábært úrval af kokteilsnittum og tapassnittum sem eru hver annarri gómsætari og eru þægilegar til framreiðslu. Lágmarkspöntun eru sex snittur sömu tegundar og þær snittur sem við bjóðum upp á eru roastbeefsnitta, rækjusnitta, tapassnitta með tapas skinku og camembertosti, tapassnitta með hunangsristaðri skinku og piparosti, tapassnitta með hunangsristaðri skinku og paprikuosti og tapassnitta með salami og hvítlauksosti.

 

Það er einstaklega hentugt að panta veisluveiga hjá okkur og þú sparar mikinn tíma í eldhúsinu fyrir undirbúning að þinni veislu.

Ferskbakað til að njóta samdægurs

Við hjá Tertugalleríinu viljum ítreka að best er að sækja pöntun sama dag og veislan eða tilefnið er, þannig að þið bjóðið upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga þegar tertur eru pantaðar!

Pantið tímanlega

Tertugalleríið hefur í mörg ár boðið upp á gott úrval af frábærum veisluveigum á hagstæðu verði fyrir veislur. Veldu þínar veisluveigar og leyfðu okkar að liðsinna þér við undirbúninginn. Við mælum með því að þið skoðið úrvalið okkar og pantið tímanlega.

Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi. Athugið að á álagstímum getur afgreiðslutími lengst.

Afhending og ábyrgð

Það er okkur hjá Tertugalleríinu mikið kappsmál að afgreiðsla pantana sé alltaf rétt og að vörurnar okkar standist væntingar viðskiptavina. Liður í að tryggja það er að viðtakendum er alltaf sýnd varan við afgreiðslu og farið er fram á að móttakandi staðfesti að um rétta afgreiðslu sé að ræða hvort sem það er sami aðili og pantaði eður ei.

Á opnunar- og afgreiðslutíma er alltaf bakari á vakt sem brugðist getur við og lagfært eða breytt ef misskilningur hefur orðið eða afgreiðsla er ekki í samræmi við það sem pantað var. Eftir að vörur hafa verið sýndar og móttakandi veitt þeim viðtöku eru pantanir ekki lengur á ábyrgð Tertugallerís.

Ef einhverja hluta vegna pöntun er ekki sótt fyrir lokun er reikningur sendur á viðkomandi þar sem varan hefur verið framleidd samkvæmt ósk kaupanda.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →