Sælkerasalötin okkar einfalda þér fyrirhöfnina í eldhúsinu

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Við þekkjum flest til mismunandi tegunda af sælkerasalötum og mörgum þykir fátt betra en samloka með góðu sælkerasalati og mætti segja að það væri algjör klassík.

Hvort sem fólk kýs að hafa sælkerasalatið í samloku með t.d. nýju Heimilisbrauði þá er sælkerasalat alltaf líka gott með rúnstykki, alls konar kexi, hrökkbrauði eða hreinlega með fersku niðurskornu grænmeti til að dýfa í.

Sælkerasalötin okkar eru líka tilvalin fyrir brauðtertuna og rúllutertubrauðið og auðveldar þér fyrirhöfnina og sparar þér mikinn tíma í eldhúsinu. Þar að auki eru sælkerasalötin fullkomin viðbót á veisluborðið.

Sælkerasalötin koma í handhægum 1 kg. umbúðum og er hægt að velja um skinku-, túnfisk- eða rækjusalat.

Leyfðu okkur hjá Tertugalleríinu að einfalda þér og þínum fyrirhöfnina við eldhússtörfin og pantaðu þitt uppáhalds sælkerasalat. Skoðaðu úrvalið hér!

Auðveldaðu þér fyrirhöfnina í sumar og pantaðu þitt uppáhalds sælkerasalat.

Skoðaðu úrvalið og nánari upplýsingar hér.

Pantið tímanlega

Tertugalleríið hefur í mörg ár boðið upp á gott úrval af frábærum veisluveigum á hagstæðu verði fyrir útskriftarveislur. Veldu þínar veisluveigar og leyfðu okkar að liðsinna þér við undirbúninginn. Við mælum með því að þið skoðið úrvalið okkar og pantið tímanlega.

Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi.

Athugið að á álagstímum getur afgreiðslutími lengst.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →