Pantaðu sælkerasalat fyrir sumarveisluna

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Við þekkjum flest til mismunandi tegunda af sælkerasalötum og mörgum þykir fátt betra en samloka með góðu sælkerasalati og mætti segja að það væri algjör klassík.

Hvort sem fólk kýs að hafa sælkerasalatið í samloku með t.d. nýju Heimilisbrauði þá er sælkerasalat alltaf líka gott með rúnstykki, alls konar kexi, hrökkbrauði eða með fersku niðurskornu grænmeti til að dýfa í.

Sælkerasalötin okkar eru líka tilvalin fyrir brauðtertuna og rúllutertubrauðið og auðveldar þér fyrirhöfnina og sparar þér mikinn tíma í eldhúsinu. Þar að auki eru sælkerasalötin fullkomin viðbót á veisluborðið þitt í sumar.

Sælkerasalötin koma í handhægum 1 kg. umbúðum og er hægt að velja um skinku-, túnfisk- eða rækjusalat.

Leyfðu okkur hjá Tertugalleríinu að einfalda þér og þínum fyrirhöfnina við eldhússtörfin í sumar og pantaðu þitt uppáhalds sælkerasalat.

Skoðaðu úrvalið og nánari upplýsingar hér.

Ferskbakað til að njóta samdægurs

Við hjá Tertugalleríinu viljum ítreka að best er að sækja pöntun sama dag og veislan eða tilefnið er, þannig að þú bjóðir upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga sérstaklega þegar tertur eru pantaðar!

Pantið tímanlega

Tertugallerí hefur í mörg ár boðið frábærar og ljúffengar veisluveigar á hagstæðu verði. Við mælum eindregið með því að þú pantir tímanlega. Á miklum álagstímum, eins og fyrir fermingar, er betra að gefa okkur eins langan fyrirvara og þú getur, til að öruggt sé að við getum annað þinni pöntun.

Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi.

Afhending og ábyrgð

Það er okkur hjá Tertugalleríinu mikið kappsmál að afgreiðsla pantana sé alltaf rétt og að vörurnar okkar standist væntingar þínar. Liður í að tryggja það er að viðtakendum er alltaf sýnd varan við afgreiðslu og farið er fram á að móttakandi staðfesti að um rétta afgreiðslu sé að ræða hvort sem það er sami aðili og pantaði eður ei.

Á opnunar- og afgreiðslutíma er alltaf bakari á vakt sem brugðist getur við og lagfært eða breytt ef misskilningur hefur orðið eða afgreiðsla er ekki í samræmi við það sem pantað var. Eftir að vörur hafa verið sýndar og móttakandi veitt þeim viðtöku eru pantanir ekki lengur á ábyrgð Tertugallerís.

Ef einhverja hluta vegna pöntun er ekki sótt fyrir lokun er reikningur sendur á viðkomandi þar sem varan hefur verið framleidd samkvæmt ósk kaupanda.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →