Fagnaðu brúðkaupsafmælinu

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Það er góður siður að halda upp á brúðkaupsafmæli og vilja flestir gera vel við sig á þessum merkilega degi. Þar sem brúðkaupsafmælin eru kennd við ýmsa hluti eru flestir sem gefa gjafir tengda því ári sem fylgir árinu sem brúðkaupsafmælið er. Þá er tilvalið að fagna með ljúffengri brúðartertu frá Tertugalleríinu, en hjá okkur færðu tertur sem henta öllum tilefnum og það á svo sannarlega einnig við um brúðkaupsafmælið.

Við hjá Tertugalleríinu bjóðum upp á dásamlegar brúðartertur með þrennskonar útlitsgerðum sem eru Lafði Díana, Lafði Kate og Lafði Grace. Brúðarterturnar eru allar gerðar úr súkkulaðitertubotni með unaðslegri súkkulaði-mousse fyllingu, hjúpuðaðar með hvítum sykurmassa og að lokum skreyttar með sykurblómum, ferskum berjum og súkkulaðivindlum.

Við mælum með því að þú skoðir úrvalið okkar og njótir þess að fagna brúðkaupsafmælinu með ástinni þinni!

Ferskbakað til að njóta samdægurs

Við hjá Tertugalleríinu viljum ítreka að best er að sækja pöntun sama dag og veislan eða tilefnið er, þannig að þú bjóðir upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga þegar tertur eru pantaðar!

Pantið tímanlega

Tertugallerí hefur í mörg ár boðið frábærar og ljúffengar veisluveigar á hagstæðu verði. Við mælum eindregið með því að þú pantir tímanlega. Á miklum álagstímum, eins og fyrir fermingar, er betra að gefa okkur eins langan fyrirvara og þú getur, til að öruggt sé að við getum annað þinni pöntun.

Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi.

Afhending og ábyrgð

Það er okkur hjá Tertugalleríinu mikið kappsmál að afgreiðsla pantana sé alltaf rétt og að vörurnar okkar standist væntingar þínar. Liður í að tryggja það er að viðtakendum er alltaf sýnd varan við afgreiðslu og farið er fram á að móttakandi staðfesti að um rétta afgreiðslu sé að ræða hvort sem það er sami aðili og pantaði eður ei.

Á opnunar- og afgreiðslutíma er alltaf bakari á vakt sem brugðist getur við og lagfært eða breytt ef misskilningur hefur orðið eða afgreiðsla er ekki í samræmi við það sem pantað var. Eftir að vörur hafa verið sýndar og móttakandi veitt þeim viðtöku eru pantanir ekki lengur á ábyrgð Tertugallerís.

Ef einhverja hluta vegna pöntun er ekki sótt fyrir lokun er reikningur sendur á viðkomandi þar sem varan hefur verið framleidd samkvæmt ósk kaupanda.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →