Myllan tekur þátt í Veganúar

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Samtök grænkera á Íslandi kynna Veganúar 2019 en markmiðið er að vekja fólk til umhugsunar um áhrif neyslu dýraafurða og kynna kosti vegan fæðis fyrir heilsu, umhverfi og dýravernd. Skoðaðu heimasíðu Veganúar hér!
Allir ættu að geta fundið sér vegan Myllubrauð við hæfi en í vegan flokknum á heimasíðu Myllunnar má finna glæsilegt úrval af vegan brauðum. Þar á meðal Heimilisbrauð, öll Lífskornabrauðin, Hveiti samlokubrauð, Maltbrauð, Dönsk rúgbrauð, Maltað kornbrauð, Bæjara sólkjarnabrauð, Kornbrauð, Speltbrauð og Heilkornabrauð. Skoðaðu úrvalið af vegan brauði frá Myllunni. Það kæmi þér á óvart hve mikið af brauðunum okkar eru vegan! Hér sérð þú allar vegan vörur Myllunnar!
Við hjá Tertugallerí Myllunnar er einnig með ljúffengt úrval af vegan smurbrauði og brauðréttum en hjá Tertugalleríinu færðu tvær tegundir af vegan smurbrauði, tvær tegundir af vegan brauðtertum og þrjár tegundir af vegan snittum. Skoðaðu nánar allar vegan veitingar Tertugallerísins í færslunni hér!
Sparaðu þér fyrirhöfnina og bjóddu uppá vegan veitingar í næsta hitting! Skoðaðu úrvalið af öllum vegan veitingum Tertugallerísins og pantaðu strax í dag!

Pantaðu tímanlega
Afgreiðslufrestur undir venjulegum kringumstæðum er 2-3 sólarhringar. Hafa ber í huga að afgreiðslufresturinn getur lengst með skömmum fyrirvara og lokast fyrir þá daga í pöntunardagatalinu. Þegar gengið er frá pöntun þarf að velja á hvaða klst. er sótt til okkar í Tertugalleríið í Skeifuna 19.
Til að fá vöru afhenta á laugardegi eða sunnudegi þarf að panta í síðasta lagi fyrir klukkan 16:00 á fimmtudegi, með fyrirvara um að ekki sé búið að loka fyrir pantanir.

Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →