Haltu uppá sumarsólstöður með gómsætri tertu

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Sumarsólstöður eru í dag 21. júní og það er þegar sól er hæst á lofti á norðurhveli jarðar og er því lengsti dagur ársins. Sumarsólstöður er einn hápunktur sumarsins og er hann einn helsti hátíðardagur ásatrúarmann. Það er alltaf mikið um að vera á þessum degi á Norðurlöndunum en haldin er miðsumarhátíð með pompi og prakt. Sumarsólstöður var hafður til viðmiðunar þegar kirkjan valdi messudag Jóhannesar skrírar sem víða er haldinn hátiðlegur og heitir Jónsmessa. Jónsmessa er haldin 24. júní.

Til að halda vel upp á þennan merkisdag er gott að snæða sér á gómsætri tertu og smástykkjum frá Tertugallerí.

Sólmánuður og sumarsólstöður eru haldin hátíðleg en í Snorra-Eddu er þessi mánuður nefndur Selmánuður. Hann er þriðji sumarmánuðurinn í gamla norræna tímatalinu en í því tímatali var miðast við sex vetrarmánuði og sex sumarmánuði. Mánuðurnir á einu sumri byrjaði á hörpu svo skerplu, sólmánuði, heyönnum, tvímánuði og svo haustmánuður.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →