Fagnaðu Hinsegin dögunum með litríkum veitingum

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Í ár verða Hinsegin dagar haldnir frá 8. ágúst til 13. Ágúst. Viljir þú gera vel við vini, vandamenn eða vinnufélaga er hægt að panta fjölbreyttar veigar frá Tertugalleríinu til að fagna fjölbreytileikanum.

Á Hinsegin dögum boðið uppá alls kyns skemmtanir alla vikuna en hápunkturinn er að sjálfsögðu gleðigangan sem er á laugardaginn.

Öll tilefni eru tækifæri til að fagna og gleðjast með náunganum og nú er því kjörið tækifæri að bjóða upp á ljúffenga súkkulaðitertu frá Tertugalleríinu og koma gestum og gangandi skemmtilega á óvart. Hjá okkur er hægt að fá ljúffengar súkkulaðitertur og bollakökur með áprentaði mynd á sykurmassa. Regnbogafáninn fer tertunum og bollakökunum okkar einstaklega vel.

Litlu og litríku kleinuhringirnir okkar eru tilvaldir fyrir Hinsegin dagana en það vill svo heppilega til að þeir eru ekki bara fallegir heldur líka einstaklega gómsætir og koma 30 stykki saman í kassa. Sama gildir um gómsætu og girnilegu makkarónukökurnar okkar sem koma í fallegum litum og eru 35 stykki saman í kassa.

Þú getur skoðað allar okkar veisluveigar hér!

Ferskbakað til að njóta samdægurs

Við hjá Tertugalleríinu viljum því ítreka að það er best að sækja pöntun sama dag og veislan er, þannig að þið bjóðið upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga þegar tertur eru pantaðar!

Pantið tímanlega

Tertugalleríið hefur í mörg ár boðið upp á gott úrval af frábærum veisluveigum á hagstæðu verði fyrir útskriftarveislur. Veldu þínar veisluveigar og leyfðu okkar að liðsinna þér við undirbúninginn. Við mælum með því að þið skoðið úrvalið okkar og pantið tímanlega.

Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi.

Athugið að á álagstímum getur afgreiðslutími lengst.

Afhending og ábyrgð

Það er okkur hjá Tertugalleríinu mikið kappsmál að afgreiðsla pantana sé alltaf rétt og að vörurnar okkar standist væntingar viðskiptavina. Liður í að tryggja það er að viðtakendum er alltaf sýnd varan við afgreiðslu og farið er fram á að móttakandi staðfesti að um rétta afgreiðslu sé að ræða hvort sem það er sami aðili og pantaði eður ei.

Á opnunar- og afgreiðslutíma er alltaf bakari á vakt sem brugðist getur við og lagfært eða breytt ef misskilningur hefur orðið eða afgreiðsla er ekki í samræmi við það sem pantað var. Eftir að vörur hafa verið sýndar og móttakandi veitt þeim viðtöku eru pantanir ekki lengur á ábyrgð Tertugallerís.

Ef einhverja hluta vegna pöntun er ekki sótt fyrir lokun er reikningur sendur á viðkomandi þar sem varan hefur verið framleidd samkvæmt ósk kaupanda.

 

 


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →