Gleðilega hinsegin daga

Útgefið af Helga Guðrún Jónasdóttir þann

Hinsegin dagar eru einstök menningar- og margbreytileikahátíð með alls kyns skemmtunum og viðburðum fyrir alla fjölskylduna. Þeir mynda einstakan vettvang fyrir alla til að fagna ástinni í þeim fjölbreytileika sem hún birtist hverjum og einum. Hápunktur hátíðarhaldanna er svo sjálf gleðigangan í miðborg Reykjavíkur laugardaginn 8. ágúst. 

Ást og kærleikur er þema sem gengið hefur eins og rauður þráður í gegnum sögu kökugerðarlistarinnar svo öldum skiptir, allt frá sætum bita sem bráðnar í munni og hjartalöguðum kökum að veglegum þriggja hæða brúðarkökum. Þá fagnar e.t.v. fátt betur fjölbreytileikanum en þessar fallega litríku makkarónur.

Í tilefni af hinsegin dögum óskar Myllan Tertugallerí landsmönnum öllum ástar og friðar.

 


Deila þessari færslu



← Eldri færsla