Gerðu vinnufundinn eftirminnilegan
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Við vitum öll hversu mikilvægir vinnufundir eru fyrir framgang verkefna og samheldni teymisins á vinnustaðnum. Við vitum líka að það er ekkert sem kætir og bætir fundina betur en ljúffengar veitingar sem gleðja bragðlaukana og skapa góða stemningu. Þess vegna er Tertugalleríið tilvalinn kostur þegar þú vilt gera fundina að eftirminnilegri upplifun.
Tertugalleríið er þekkt fyrir fjölbreytt úrval af ferskum og ljúffengum tertum, kökum, smáréttum og öðrum veitingum sem eru fullkomnar fyrir fundi í vinnunni. Hvort sem um ræðir lítið teymi eða stóran hóp getum við sérsniðið veitingarnar að þínum þörfum. Veisluveigar okkar eru ekki aðeins gæddar góðu handverki og vandaðri framleiðslu, heldur einnig tilbúnar til að gleðja alla í fundarherberginu.
Taktu fundinn upp á næsta stig
Fundir eru tækifæri til að sameinast og leggja grunn að góðri vinnu. Með veitingum frá Tertugalleríinu getur þú tryggt að þessi tími verði ekki aðeins árangursríkur heldur líka ljúflega eftirminnilegur. Við hjá Tertugalleríinu getum einfaldað þér fyrirhöfnina með bragðgóðum og fallegum fundarveitingum. Snitturnar okkar er frábær hugmynd sem slær alltaf í gegn og það er vinsælt hjá fyrirtækjum að panta snittur þegar fundur er framundan. Þess heldur eru snitturnar tilvaldar fyrir öll tilefni og allir geta fundið sér eitthvað við hæfi hvort sem það er á fundinn, í veisluna, eða í árbítsboð með vinum og ættingjum.
Þú getur valið úr mörgum tegundum sem eru hver annarri gómsætari og snitturnar eru þægilegar til framreiðslu. Lágmarkspöntun eru sex snittur sömu tegundar og þær snittur og tapas snittur sem við bjóðum upp á eru roastbeefsnitta, rækjusnitta, tapas snitta með tapas skinku og camembertosti, tapas snitta með hunangsristaðri skinku og piparosti, tapas snitta með salami og hvítlauksosti og tapas snitta með hunangsristaðri skinku og paprikuosti.
Það er alltaf gott að huga að sætum veitingum með í leiðinni og við mælum eindregið með ljúffengum, og litríkum makkarónukökum. Makkarónukökurnar koma 35 stykki saman á bakka og eru með sítrónu-, saltkaramellu-, hindberja-, vanillu-, súkkulaði-, pistasíu-, kaffi- eða ástaraldinbragði.
Tertugalleríið gerir þér einfalt fyrir að panta veitingar hratt og vel fyrir hvaða tilefni sem er. Það eina sem þú þarft að gera er að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn, því möguleikarnir eru nánast endalausir. Á vefsíðu Tertugallerísins finnur þú allar upplýsingar sem þú þarft fyrir pöntunarferlið og ef frekari spurningar vakna getur þú alltaf haft samband við okkur í tölvupósti, símleiðis eða á Facebook. Við reynum að svara öllum fyrirspurnum eins fljótt og hægt er, allt til að aðstoða þig á sem bestan máta.
Ferskbakað til að njóta samdægurs
Við hjá Tertugalleríinu viljum því ítreka að það er best að sækja pöntun sama dag og veislan er, þannig að þú bjóðir upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga þegar tertur eru pantaðar!
Pantaðu tímanlega
Tertugalleríið hefur í mörg ár boðið upp á gott úrval af frábærum veisluveigum á hagstæðu verði fyrir fundarhöld í vinnunni. Veldu þínar veisluveigar og leyfðu okkar að liðsinna þér við undirbúninginn. Við mælum með því að þú skoðir úrvalið okkar og pantar tímanlega.
Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi.
Athugið að á álagstímum getur afgreiðslutími lengst.
Afhending og ábyrgð
Það er okkur hjá Tertugalleríinu mikið kappsmál að afgreiðsla pantana sé alltaf rétt og að vörurnar okkar standist væntingar viðskiptavina. Liður í að tryggja það er að viðtakendum er alltaf sýnd varan við afgreiðslu og farið er fram á að móttakandi staðfesti að um rétta afgreiðslu sé að ræða hvort sem það er sami aðili og pantaði eður ei.
Á opnunar- og afgreiðslutíma er alltaf bakari á vakt sem brugðist getur við og lagfært eða breytt ef misskilningur hefur orðið eða afgreiðsla er ekki í samræmi við það sem pantað var. Eftir að vörur hafa verið sýndar og móttakandi veitt þeim viðtöku eru pantanir ekki lengur á ábyrgð Tertugallerís.
Ef pöntun er einhverja hluta vegna ekki sótt fyrir lokun er reikningur sendur á viðkomandi þar sem varan hefur verið framleidd samkvæmt ósk kaupanda.
Deila þessari færslu
- Merki: Fundur, Kokteilsnittur, Pantaðu tímanlega, Snittur, Tapassnittur, Vinnufundur