Fagnaðu sumrinu með veitingum frá Tertugalleríinu

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Nú er sumarið komið! Því er tilvalið að slá til og halda sumarlega veislu með veitingum frá frá Tertugalleríinu. Bjóddu fólkinu þínu í heimsókn og auðveldaðu þér svo fyrirhöfnina með að panta veitingar frá Tertugalleríinu. Það eina sem þú þarft að gera er að panta og sækja.

Fyrir sumarið mælum við með tapas snittunum okkar, en um er að ræða 5 tegundir af tapas snittum og þar á meðal er auðvitað vegan kostur.
Litlu og litríku kleinuhringirnir okkar slá einfaldlega alltaf í gegn.

Skoðaðu úrvalið hér!

Fyrir sætan endi mælum við með Marengsbombunni okkar en hægt er að fá hana tveimur stærðum, 15 manna og 30 manna. Þessi púðursykursmarengsbomba er með rjómafyllingu, skreytt með marengsbotum, karamellu, súkkulaði og ferskum berjum.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →